Показаны сообщения с ярлыком Ítalir. Показать все сообщения
Показаны сообщения с ярлыком Ítalir. Показать все сообщения

воскресенье, 6 января 2013 г.

Sophia Loren

Fæðingardagur: 20 september 1934
Fæðingarstaður: Ítalía
Staðsetning: Ítalía
Þjóðerni: Ítalir

Sophia Loren (f. Sofia Villani Scicolone; 20. september 1934) er ítölsk leikkona sem hóf feril sinn á 6. áratug 20. aldar í gamanmyndum með leikurum á borð við Vittorio De Sica, Alberto Sordi og Marcello Mastroianni. Upp úr miðjum áratugnum lék hún hlutverk í Hollywood-kvikmyndum sem gerðu hana brátt heimsfræga. Fyrsta enskumælandi kvikmyndin sem hún lék í var Drengurinn á höfrungnum (1957). Hún fékk Óskarsverðlaun fyrir leik sinn í kvikmynd De Sica Tvær konur (La ciociara – 1960) og tilnefningu fyrir Hjónaband að ítölskum hætti (Matrimonio all'Italiana – 1964) eftir sama leikstjóra, þar sem hún lék á móti Mastroianni.

воскресенье, 25 ноября 2012 г.

Megan Fox

Fæðingardagur: 16 maí 1986
Fæðingarstaður: United States of America
Staðsetning: United States of America
Þjóðerni: Ítalir - 25%, Irska - 25%, Cherokee-indiánarnir - 25%, Franska - 25%

Megan Denise Fox (fædd 16. maí 1986 í Oak Ridge í Tennessee) er bandarísk leikkona.

Eftir að hafa náð góðum árangri sem fyrirsæta vildi hún reyna fyrir sér sem leikkona og árið 2001 fékk hún hlutverk í kvikmyndinni Holiday in the Sun sextán ára gömul. Síðar lék Megan á tímabili gestahlutverk í nokkrum þáttum á borð við What I Like About You, Two and a Half Men, og Ocean Ave.

Árið 2004 lék hún við hlið Lindsay Lohan í myndinni Confessions of a Teenage Drama Queen. Árið 2007, eftir að Megan hafði verið þrjú ár í Hollywood, fékk hún hlutverk í stórmyndinni Transformers. Sú mynd sló í gegn og meðal annars fékk Megan Teen Choice Awards verðlaunin fyrir leik sinn í myndinni.

Lítið fréttist af leikkonunni eftir frumsýningu Transformers eða þangað til Transformers: Revenge of the Fallen kom út í byrjun árs 2009.

Í kjölfarið á frumsýningu Transformers 2 jukust vinsældir Megan gríðalega og var hún valin kynþokkafyllsta kona heims af blaðinu Sandbox í Bandaríkjunum.